Jón M. Einarsson Ph.D.

1 af 2

Dr. Jón Magnús Einarsson er líffræðingur með yfir 30 ára reynslu í sjávarlíftækni, ensímfræði og nýtingu lífrænna auðlinda úr hafi. Hann lauk B.Sc.- og 4. árs verkefni í líffræði frá Háskóla Íslands og doktorsprófi í lífefnafræðilegri taugafræði frá University College Dublin árið 1992. Í starfi sínu hefur Jón sérhæft sig í ensímframleiðslu, byggingargreiningu og hagnýtingu lífefna úr sjávarfangi, einkum kítínafleiða og kítófásykra. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun alþjóðlegra rannsóknar- og þróunarverkefna auk þess að vera meðhöfundur fjölda einkaleyfa og ritrýndra vísindagreina.