Þorleifur Eiríksson, Sigurður Ívar Jónsson, Jón M. Einarsson og Starri Heiðmarsson 2026. Fuglar og gróður við Merkihvol Rangárþingi Ytra. Rorum 2026 004.
Þorleifur Eiríksson, Sigurður Ívar Jónsson, Jón M. Einarsson og Starri Heiðmarsson 2026. Fuglar og gróður við Merkihvol Rangárþingi Ytra. Rorum 2026 004.
Samkvæmt beiðni Eflu voru gerðar fugla- og gróðurathuganir við Merkihvol í Rángárþingi ytra vegna fyrirhugaðs vikurnáms. Landsvæði Merkihvols einkennist af lítt grónum vikrum, melum og söndum. Þrjár vistgerðir eru á svæðinu og 33 tegundir æðplantna eru skráðar þar og eru þær allar útbreiddar og algengar. Fáar tegundir fugla fundust, eða fjórar, eins og við var búist miðað við búsvæði. Þær tegundir sem fundust eru algengir íslenskir fuglar og líklega algengir á nágrenninu.