Þorleifur Eiríksson Sigurður Ívar Jónsson Jón M. Einarsson og Starri Heiðmarsson 2026. Fuglar og gróður við Hrífunes, Heiðarsel II og Gráholt í Skaftárhreppi. Rorum 2026 003.

Þorleifur Eiríksson Sigurður Ívar Jónsson Jón M. Einarsson og Starri Heiðmarsson 2026. Fuglar og gróður við Hrífunes, Heiðarsel II og Gráholt í Skaftárhreppi. ISSN 2547-6696. Rorum 2026 003.

Útdráttur:

Samkvæmt beiðni Eflu fór fram fugla- og gróðurskoðun við Hrífunes, Heiðarsel II og Gráholt í Skaftárhreppi. Fuglalíf á þessum svæðum við Heiðarsel II, Gráholt og Hrífunes er frekar fábreytt. Það einkennist af svokölluðum mófuglum. Allt eru þetta algengir íslenskir varpfuglar og væntanlega algengir í nágrenninu. Níutíu tegundir æðplantna fundust og telst engin þeirra sjaldgæf né á válista. Sautján ólíkar vistgerðir voru kortlagðar, votlendisvistgerðir hafa óverulega þekju en við Hrífunes þakti birkiskógur stóran hluta rannsóknarsvæðisins. Mosar voru áberandi í Gráholti og í Heiðarseli II var stór hluti svæðisins gömul tún.