Starri Heiðmarsson og Þorleifur Eiríksson 2026. Gróður og fuglar við Hauganes í Eyjafirði. ISSN 2547-6696. Rorum 2026 006.

Starri Heiðmarsson og Þorleifur Eiríksson 2026. Gróður og fuglar við Hauganes í Eyjafirði. ISSN 2547-6696. Rorum 2026 006.

Samkvæmt beiðni Laxós ehf. tók Rorum, í samstarfi við Náttúrustofu Norðurlands vestra, að sér að skoða fugla og gróður á framkvæmdasvæði fiskeldis á landi við Hauganes í Eyjafirði. Á svæðinu voru kortlagðar sjö ólíkar vistgerðir. Rétt um þriðjungur flokkast sem tún en norðurhlutinn er að mestu þakinn fjalldrapamóa. Aðrar vistgerðir með umtalsverða þekju eru runnamýravist á láglendi, víðikjarrvist og lyngmóavist á láglendi. Af þeim vistgerðum sem kortlagðar voru teljast nokkrar hafa allmikið verndargildi. Það dregur þó óneitanlega úr náttúruverndargildi vistgerðanna hversu raskaður syðri hluti svæðisins er en framræsluskurðir eru nokkrir á syðri hlutanum. Tegundafjölbreytni æðplantna var könnuð og teljast allar þær tegundir sem fundust algengar og útbreiddar. Á framkvæmdasvæðinu verpa algengar tegundir fugla: Grágæs, Rjúpa, Stelkur, Hrossagaukur, Spói, Jaðrakan, Skógarþröstur, Þúfutittlingur, Fýll, Svartbakur/Sílamáfur, Hettumáfur, Kría. Við framkvæmdirnar skaðast varpsvæði fugla, en svæðið er lítið og ekki er gert ráð fyrir að framkvæmdirnar hafi áhrif á varp fugla fyrir utan svæðið.