Starri Heiðmarsson, Valtýr Sigurðsson, Sigurður Ívar Jónsson, Jón M. Einarsson og Þorleifur Eiríksson 2026. Fugla- og gróðurskoðun við Fellsenda og Galtalæk í Hvalfirði. Rorum 2026 005.

Starri Heiðmarsson,  Valtýr Sigurðsson, Sigurður Ívar Jónsson, Jón M. Einarsson og Þorleifur Eiríksson 2026. Fugla- og gróðurskoðun við Fellsenda og Galtalæk í Hvalfirði. Rorum 2026 005.

Útdráttur:

Fugla- gróðurskoðun var framkvæmd á Fellsenda og Galtalæk við Grundartanga í Hvalfirði. Fuglar voru skoðaðir á varptíma, en á Galtalæk einnig sumar og haust. Fuglalíf við Fellsenda og Galtalæk var eins og við var búist og einkenndist af mófuglum. Ekki sáust umferðarfuglar svo sem rauðbrystingar eða tildrur um sumarið eða haustið. Allir fuglar sem sáust eru algengir fuglar og ættu að vera algengir í nágrenninu. 

Vistgerðir voru kortlagðar og tegundir æðplantna skráðar. Engar sjaldgæfar æðplöntutegundir fundust né tegundir á válista. Mest var um graslendi og mólendi á svæðunum. Nokkur þekja starungsmýrarvistar var við Galtarvík.