Þorleifur Eiríksson og Sigurður Ívar Jónsson. 2025. Botndýrarannsóknir við Hauganes í Eyjafirði. RORUM 2025-004.
Þorleifur Eiríksson og Sigurður Ívar Jónsson. 2025. Botndýrarannsóknir við Hauganes í Eyjafirði. ISSN 2547-6696. RORUM 2025-004.
Laxós ehf óskaði eftir rannsókn á botndýrum á svæði við Hauganes í Eyjafirði vegna fyrirhugaðs fiskeldis. Sýni voru tekin á einni stöð á svæðinu og sjávarbotninn myndaður á fimm stöðvum. Botn á svæðinu var að mestu leyti harður og grýttur með þaragróðri. Krabbadýr voru áberandi á svæðinu, sérstaklega pungrækjan Eudorella emarginata og marflóin Crassicorophium bonelli. Algengustu burstaormar voru lónaþreifill (Pygospio elegans) og nikkubendill (Chaetozone setosa). Lítið var af skeldýrum á svæðinu, en algengust var kúfskel (Arctica islandica). Botndýrasamfélög eru svipuð og fundist hafa við Árskógssand og eru algeng.